Mig langar í kók!!
Hér kemur semsagt dagurinn í dag... Ég má kaupa mér nammi fyrir 315 hitaeiningar í kvöld :) þetta fer að verða eins og í gamla daga þegar að maður fékk helling af nammi fyrir 300 kall...
| matur | hitaeiningar |
| 1 hrökkbr | 37 |
| smjör | 60 |
| ostur | 69 |
| 1 banani | 180 |
| 1 rúgbr | 82 |
| hrogn | 230 |
| smjör | 30 |
| brokkoli | 10 |
| 1 appelsína | 90 |
| 1 kex | 25 |
| 100 gr lamba file | 112 |
| 1 kartafla | 45 |
| bernaissmjör | 110 |
| 1 dl kók | 60 |
| 3 gulrætur | 45 |
| samtals | 1185 |
Chao Habba nammigrís
Held bara áfram
Ég er samt búin að standa mig mjög vel í matnum í dag. Fékk mér ekkert svindl kók eða nammi þó það hafi verið efst í huga mér allan daginn hihih... Hádegismatur hjá Maður lifandi skemmir svo ekki fyrir. Kjúklingur með salati og hrísgrjónum voru á boðstolnum þar í dag og ég slefaði allveg yfir disknum. Hef bara aldrei fengið vondann mat hjá þeim og er ég mjög gagnrýnin á svona fjöldaframleiddann mat.
en hér kemur listinn fyrir daginn, ég er búin að setja inn kvöldmatinn því hann er kominn í ofninn og verður etinn innan hálf tíma :)
| 28.okt | |
| matur | hitaeiningar |
| 2 hafrakex | 60 |
| 4 sn ostur | 140 |
| kjúklingur | 104 |
| hrísgrjón | 130 |
| salat | 16 |
| tómatur | 17 |
| 1 plóma | 50 |
| 1/2 appels | 50 |
| 2 stk kex | 31 |
| 50 gr kús kús | 170 |
| hrogn | 200 |
| fiskur | 150 |
| ostur | 50 |
| döðlur | 30 |
| pestó | 89 |
| brokkolí | 25 |
| samtals | 1312 |
Chao Habba :) sem er hamingjusöm þrátt fyrir að vera búin að vera í megrun í 9 vikur hihih...
Ég er í smá lćgđ
Ég er í matarfíkla helvíti þessa daganna hihih... Held að það sé tengt blæðingum og stressi og spenningi og bara vegna þess að ég var að klára 9 vikna námskeið í leikfiminni og þarf ekki að byrja aftur fyrr en á næsta mánudag
Ég er samt allveg í þokkalega góðum málum eftir daginn í dag. Jón Karl toppaði svo vitleysuna í mér og fór og keypti KFC í kvöldmatinn... Ég fékk mér kjúklinga borgara, maisstöngul og smjör... sleppti frönskum :) svo ég er að læra.
Hér kemur talning dagsins
matur
hitaeiningar
banani
130
ananas
90
appelsína
45
3 hafrakex
90
ostur
150
smjör
100
kók
147
tortilla
74
lax
38
spínat
16
salat
0
fetaostur
25
kfc borgari
375
mais
70
bbq sósa
40
smjör
110
samtals
1500
Chao Habba matarfíkill
Ađ lćra ađ velja rétta matinn

En þegar að maður fer að telja ofan í sig kaloríurnar þá fer fljótt að hverfa úr mataræðinu sá matur sem að telur flestar kaloríurnar. Ef ég ætla að halda mig undir 1500 hitaeiningum á hverjum degi þá hef ég bara ekki efni á því að fá mér ostakökusneið sem að kostar mig 600 hitaeinginar, eða franska súkkulaði köku sem að kostar mig líka 400-600 hitaeiningar.
Ég borðaði tvo daga í röð á Vox í síðustu viku í hádeginu og þá reyndi ég markvisst að velja mér eftir hitaeiningafjölda. Ég veit það núna að það borgar sig að fylla diskinn af salati og grænmeti, sleppa brauði, fá sér ekki uppbakaðar súpur og svo mætti lengi telja. Ég fékk mér lítinn skammt af bæði kjöti og fiski og smá kartöflur... þær eru líka komnar á sparilistann. Eftirréttirnir þar voru mesta áskorunin... þeir buðu upp á 7 mismunandi sæta eftirrétti og svo melónur og ananas. Mér finnst melónur ekkert sérstaklega góðar en ég reyndi samt að fylla diskinn af þeim og fékk mér síðan eina matskeið af sykurminnsta eftirréttinum.
Ég finn það allveg núna að mig langar ekki í sykur, eða kaloríubombur. Ef mig vantar nammi þá skelli ég í mig einni lúku af súkkulaði rúsínum og þá er ég orðin góð aftur.
Síðasta vikan í fyrsta 9 vikna námskeiðinu byrjar á morgun. Ég ætla að reyna að ná af mér einu kílói í viðbót og þá hef ég lést um rúm 7 kg á 9 vikum. Ég er búin að skrá mig á næsta námskeið svo ég held ótrauð áfram að reyna að ná af aukaþyngdinni
Chao Habba sælkeri
Og ţá kom laugardagur
Dagurinn í dag verður með hefðbundnari sniði þó eru helgarnar alltaf hættulegri og þá leyfi ég mér að fá mér brauð eða smá kakó. Fórum í næstum þriggja tíma gönguferð um miðbæinn áðan og enduðum auðvitað á kaffihúsi þar fékk ég mér heitt kakó og kleinu. Sleppti rjómanum og minnkaði þannig hitaeiningarnar um svona 200 hihihi...
En svona lítur dagurinn út so far.
1 trópí
2 br sn bananabrauð (heimabakað spellt)
4 sneiðar 9% ostur
1 tsk smjör
Hádegi
Kakóbolli
1 kleina
1/4 hluti vatnsmelóna.
Skrifa restina inn þegar að líður á daginn
chao Habba
That time of the month!!
Matardagbókin er örlítið lituð af tíma mánaðarins en ég reyndi að öllum mætti að láta súkkulaðið vera sem hoppaði upp í körfuna mína í Hagkaup, en áður en ég vissi af þá var ég búin að gúffa því í mig. Það er svo hárfín lína á milli þess að borða það sem maður þarf og að borða of mikið.
| trópí | 125 |
| 2 hafrakex | 60 |
| 4 sn ostur | 140 |
| 1 rúgbr | 82 |
| kæfa | 82 |
| 1 banani | 180 |
| 1 bollasúpa | 5 |
| 3 hafrakex | 90 |
| sardínur | 50 |
| 2 sn ostur | 70 |
| pasta | 200 |
| hakksósa | 121 |
| 2 brauðsn | 150 |
| 1 cadburys caramel | 225 |
| mjólk | 100 |
| samtals | 1680 |
Ég er ekki búin að vera nógu dugleg í ávöxtunum síðustu daga. En ég fór í Hagkaup í dag og fjárfesti í nokkrum plómum og mangó. Tveir heilir fundardagar framundan í vinnunni og þá meina ég frá 9 -17 báða daganna. Og ég neyðist(not) til að fara út að borða á Vox í hádeginu á morgun og á Broadway annað kvöld og síðan í coctailboð eftir vinnu á föstudaginn... O my good það verður erfitt að telja þessa daga og svindla ekki í skráningunni...
Chao Habba með auka Höbbu á efri vörinni
Nokkuđ flottur dagur í dag
Viktunin var súper og tíminn í leikfimi í dag tók svakalega á.
Ég er orðin 6.2 kg léttari en fyrir 7 vikum og missti 500 gr á milli daga :D:D:D
Hér kemur talning dagsins:
| 20.okt | |
| matur | hitaeiningar |
| cheerios | 147 |
| 2 1/2 dl fjörmjólk | 100 |
| kjúklinga burito/serano | 300 |
| 1 trópí smoothie | 180 |
| 1 kjúllabringa | 198 |
| 85 gr hrásalat | 272 |
| 100 gr franskar | 295 |
| 50 gr maiskorn | 30 |
| samtals | 1522 |
Mánudagur ekki til mćđu ţessa vikuna
Ég er allveg ógeðslega ánægð með mig í dag. Heilsan er komin aftur, það leið ekki yfir mig í leikfiminni og ég var búin að léttast um 400 gr þó ég hafi ekki stigið inn í leikfimissalinn í heilar tvær vikur. Samtals er ég þá búin að léttast um 5.7 kg á sjö vikum og þar af eru næstum þrjár óvirkar í ræktinni vegna tveggja pesta...
Matarprógramið var fínt í dag.
matur
hitaeiningar
1 trópí
125
1banani
180
1 flatkaka
86
1 rúgbr
82
kæfa
82
logl
58
rauðbeður
60
10 vínber
38
2 kex
120
1 banani
180
1 mjólk
100
100 gr nautalund
112
1 kartafla
45
salat
16
6 litlir tómatar
36
sósa
100
samtals
1420
Þannig að áfram gakk, nú verður mætt aftur á morgun í leikfimi og þá vona ég að helgarsukkið verði runnið af mér líka og önnur 400-600 gr bætist við hihih...
Chao Habba, í 400 gr léttara skapi en í gær
sprunigin :)
Matarprógramið fór nokkuð út um þúfur hihih... en ég er innan við 1000 hitaeiningar samt því allt sem ég gerði í dag var gert með þeim hætti að ég gæti borðað mikið án þess að það kostaði mikið á eftir að telja það saman og sjá hver endanlega útkoman verður.
Chao Habba, ánægð og þakklát fyrir fjölskylduna mína
Er ađ breytast í kínverja
Dagurinn í dag lítur svona út
Morgunmatur:
1 glas trópí 112 einingar
1/2 granóla stykki 100 einingar
Hádegi:
Kínamatur blandaður, (núðlusúpa,kjúklingaréttur,fiskur) 200 einingar
1 dl hrísgrjón 130 einingar
Síðdegi:
1/2 granóla stykki 100 einingar
Kvöldmatur
speltpizza með sætum kartöflum,furuhnetum og hráskinku 300 einingar
þetta er fer bara rétt í kringum 1000 eininingar í dag
Eitt sem ég hef tekið eftir í þessari viku að ég er búin að borða kínamat í hádeginu þrjá daga í röð hihihi... allt var þetta matur frá sitthvorum staðnum í bænum. En í dag fékk ég mat frá Asíu á laugarvegi og ég fékk svakalegann svima eftir að hafa borðað hann... Ásdís vinnufélagi benti mér á að maturinn frá þeim væri sennilega með MSG og það gæti verið orsökin... Ætla að rannsaka þetta, ég veit allaveganna að ég má ekki borða venjulega sojasósu þá fæ ég svima... en þoli vel glútenlausa sojasósu, kannski var bara soja í núðlusúpunni og á fisknum og kjúllanum þó ég hafi ekki fundið það á bragðinu
Chao Habba sem heldur áfram í kaloríu stríðinu
